Tilkynning um dagskrá

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 17:09:14 (8232)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Nú stendur þannig á að hér átti að hefjast og mun hefjast mjög fljótlega umræða utan dagskrár um vanda sjávarútvegsins. En þannig stendur á að handhafar forsetavalds eru á leið frá Keflavík eftir að hafa fylgt forseta lýðveldisins og ákveðið hefur verið að hefja umræðuna ekki fyrr en hæstv. forsrh. er kominn til starfa eða hingað í þingsal.