Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Ég mun ekki fara hér í efnisumræðu en ég ítreka það sem ég sagði hér áðan að í ræðu sinni um iðnaðarmál fór hæstv. utanrrh. með rangar fullyrðingar um verðlagsþróun og styrki til landbúnaðar á síðustu árum. Ég mun eins og ég sagði svara því þegar landbúnaðarmál koma hér á dagskrá seinna á fundinum.
Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni og orða hæstv. viðskrh. í gær um það að hér væru einhverjir ,,terroristar`` sem væru alltaf í þingskapaumræðu þá vil ég benda á að með einföldum framreikningi og ef við tökum hversu oft hæstv. utanrrh. hefur beðið um orðið um þingsköp í gær og í dag, reyndar til að ræða í flestum tilfellum efnislega um mál, þá mundi hæstv. ráðherra ekki tala um þingsköp hundrað sinnum eins og hann ræddi um að einstaka þingmenn hefðu gert á vetrinum heldur mundi það vera, með svona 120 daga þingi á ári, 300--400 sinnum sem hæstv. utanrrh. mundi standa hér í stólnum og ræða um þingsköp því mér taldist til að þetta hefði verið í fimmta eða sjötta sinn á tveimur dögum sem hæstv. ráðherra stóð hér og ræddi um þingsköp og reyndar var að ræða um allt annað en efnisleg atriði.