Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti getur svarað hv. þm. því að hún hefur ekki hugmynd um hvaða hug hv. 17. þm. Reykv., 1. flm. þessarar tillögu, hefur til þessa máls en vill hins vegar upplýsa að það hafa engin ný mál verið tekin á dagskrá undanfarna daga. Forseti upplýsti það sem svar við spurningu hv. 4. þm. Norðurl. v. á sínum tíma að ef og þegar ný mál yrðu tekin á dagskrá, þá væri þetta mál efst á biðlistanum. Forseti stendur við þetta. Og ef forseti stendur ekki við orð sín, þá er það a.m.k. ekki að yfirlögðu ráði gert.