Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þá hefur hv. 2. þm. Vestf. sannað það að forseti gengur á bak orða sinna og þar við situr. En forseti vill hins vegar benda hv. þm. og þingheimi á að mál sem heitir ,,Frestun á fundum Alþingis`` er venjulegt mál þegar komið er að starfslokum. Það er nú bara svo einfalt. En forseti getur alveg risið undir því að hafa gengið á bak orða sinna og ekki staðið við það sem hún sagði hér sem svar við fyrirspurn hv. 4. þm. Norðurl. v. og verður þá bara að taka því að vera ómerk orða sinna.