Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Það er kannski rétt vegna athugasemda um fjarveru formanns efh.- og viðskn. að forseti upplýsi að henni var kunnugt um ástæðurnar fyrir því að formaðurinn gat ekki verið hér á þessu augnabliki og mælt fyrir málum og það er verið að reyna að tefja ekki framgang mála samkvæmt dagskránni. Niðurstaðan var því sú að annar nefndarmaður mælti fyrir þessu nál.