Sveitarstjórnarlög

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 13:00:18 (8353)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti var því miður ekki í forsetastóli þegar umrædd mál voru rædd hér þannig að forseta er ekki alveg ljóst hver sá aðdragandi var. En það varð niðurstaða forseta að fresta 19. dagskrármáli. Hins vegar er ekki hægt af forsetastóli á þessari stundu að gefa aðrar yfirlýsingar en þær að forseti mun taka næst fyrir 16. dagskrármálið og síðan mun verða reynt að halda áfram þinghaldi eins og efni standa til.