Húsnæðisstofnun ríkisins

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 15:22:51 (8370)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Hv. 17. þm. Reykv., Össur Skarphéðinsson, flutti hér gagnmerka tillögu ásamt hv. 7. þm. Norðurl. e., Sigbirni Gunnarssyni, en vegna mikilla anna hefur þessi tillaga ekki komist áfram. Hv. 5. þm. Vestf. flýtti ferð tillögunnar í gegnum þingið með því að taka hana upp sem brtt. við það lagafrv. sem hér er. Í ljósi þess að hér er m.a. um að ræða tillöguflutning frá lærðasta manni Alþfl. á Alþingi Íslendinga, sem eins og allir vita ber höfuð og herðar yfir aðra í þeim flokki hvað það snertir, þá hef ég talið mikils virði að Alþingi sameinist nú um það þó að annir séu miklar að gera þetta atriði að lögum. Og í ljósi þess að meiri hluti húsnæðismálastjórnar verður skipuð stjórnarsinnum ef frv. nær fram að ganga liggur það ljóst fyrir að það er vonlaust að stjórnarandstaðan geti misnotað það þó að þessi heimild verði að lögum. Ég segi því já.