Ólafur Þ. Þórðarson
:
Virðulegur forseti. Sú tillaga, sprottin undan rótum hæstv. utanrrh., að leggja til að Íslendingar efli sín verslunarsambönd við þá þjóð heimsins sem verstu glæpaverk hefur framið á seinasta áratug varðandi mannréttindabrot, er mjög alvarleg tillaga fyrir Alþingi Íslendinga. Hún getur kostað það að íslenskum flugvélum verði rænt, hún getur kostað það að Íslendingar verði drepnir erlendis vegna þess að við höfum samþykkt hér hluti að horfa fram hjá því að hernumin þjóð, hæstv. fjmrh., nýtur engra réttinda samkvæmt samþykktum Sameinuðu þjóðanna. Engra réttinda. Ef Íslendingar samþykkja svona tillögu þá spyr ég: Til hvers eru þeir í Sameinuðu þjóðunum? Ég segi nei.