Guðrún Helgadóttir
:
Hæstv. forseti. Ég mun greiða þessari tillögu atkvæði mitt vegna þess að hún er þó mikil bót frá þeim ósköpum sem stóðu hér í upphaflega frv. og sætir satt að segja furðu að hæstv. ráðherra skuli láta annað eins frá sér fara og það sem upphaflega stóð í 11. gr. þar sem þar með hefðu reiknast inn í þetta allar bætur lífeyristrygginga svo sem mæðralaun, ekkjulífeyrir og ótal margar aðrar greiðslur. Þarna er þó nánar tekið fram að það sé elli- og örorkulífeyrir og örorkustyrkur en ekki annað svo það er þó svo sannarlega til bóta og mun ég því segja já. Þó mér sé sárt um að hafa greinina eins og hún er orðin þá er hún þó betri en hún var.