Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þessi umræða um gæslu þingskapa núna staðfestir það kannski betur en nokkuð annað hve brýnt það er að finna farveg fyrir slíka umræðu eins og hér hefur farið fram. Samkvæmt þingsköpum er ekki hægt að leyfa utandagskrárumræðu með svo stuttum fyrirvara sem raun bar vitni þegar þetta mál bar að og hv. þm. óskaði eftir að fá að ræða það hér. Slík umræða þarf að bera að með þeim hætti að það sé óskað eftir henni tveimur stundum fyrir þingfund og að um hana sé tilkynnt í upphafi þingfundar. Þess vegna sá forseti í gegnum fingur sér og með þessum hætti var reynt að koma þeim skilaboðum til hæstv. ráðherra og skilaboðum ráðherra til hv. þm. um það mál sem hv. þm. lá á hjarta.