Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég neyðist til þess undir liðnum þingsköp að varpa þeirri spurningu fram þar sem ekki mun eiga að fara fram utandagskrárumræða um málefni lánasjóðsins, hvort þær reglur sem ráðherra hefur verið að segja að hann mundi líklega ekki samþykkja gætu komið til með að gilda fyrir þau lán sem núna ætti að greiða út í lok maí. Er lánasjóðurinn hér með að setja sér reglur sem koma til með að gilda fyrir þá úthlutun?