Framhald þingfundar

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 21:24:12 (8459)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti taldi sig nú hafa svarað þessu áður en fundi var frestað. Það verður boðað til nýs fundar þegar að loknum þessum fundi með þeim málum sem þar verða á dagskrá ef leyft verður og forseti veit ekki betur en að það sé verið, ef ekki er búið, að dreifa þeirri dagskrá. Og forseti ætlar sér að láta atkvæðagreiðslur fara fram á þeim fundi.