Framhald þingfundar

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 21:28:41 (8465)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti var nú ekki að tímasetja hvenær atkvæðagreiðslur færu fram um einstök mál sem verða á dagskrá. Forseti var hins vegar að upplýsa að þessi mál yrðu öll á dagskránni og það ætti að vera nægjanleg skýring og þá hlýtur það að koma í ljós hvernig málin ganga fyrir sig á næsta fundi. Það hefur verið erfitt að tímasetja það í dag. En það geta ekki öll mál verið í upphafi á dagskrá eða til afgreiðslu í upphafi funda því m.a. er gert ráð fyrir kosningum í upphafi næsta fundar.