Afbrigði um dagskrármál

177. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 21:32:01 (8468)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þannig háttar til um nokkur mál sem sett eru á dagskrá þessa fundar að leita þarf afbrigða þar sem of skammt er liðið frá 2. umr. eða fyrri umr. Einnig háttar þannig til um brtt. sem nú hefur verið útbýtt og er frá minni hluta heilbr.- og trn. að það er of skammt liðið frá útbýtingu hennar. Þarf nú að leita afbrigða um öll þessi mál um að þau megi koma á dagskrá og til umræðu og verður þeirra afbrigða nú leitað.