Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegi forseti. Að aflokinni þessari atkvæðagreiðslu, ef hún fer sem horfir, þá hefur hæstv. forsrh., að ég tel og samkvæmt minni reynslu, heimild til þess að standa upp hvenær sem er og lesa upp forsetabréf um frestun þings. Þetta er gert án þess að við höfum nokkra hugmynd um framgang þeirra mála sem hér eru á dagskrá. Þetta er gert væntanlega eingöngu til að hlífa hæstv. ríkisstjórn við að þurfa að ganga til atkvæðagreiðslu um 16. mál sem hér er á dagskrá, 504. mál þingsins, um breytingar á búvörulögum þess efnis að gengið verði frá því á tryggilegan hátt hverjir það verði, það verði landbrn. í samvinnu við fjmrn., sem fari með innflutningsheimildir á búvörum og álagningu jöfnunargjalda.
Við stjórnarandstæðingar höfum í dag allir lýst því yfir að við séum tilbúnir til þess að styðja þetta mál. Ég þykist vita að það séu nægilega margir í stjórnarliðinu til viðbótar til þess að styðja landbrh. ( ÖS: Heyr. Heyr.) til þess að koma þessu máli í gegn, að hér sé traustur meiri hluti. Hér kallaði ,,heyr, heyr`` formaður þingflokks Alþfl. og varaformaður landbn. sem skrifaði án fyrirvara undir nál. þessu varðandi. Ef svo fer sem mér sýnist að horfi varðandi þetta mál, þá er það að gerast sem ég sagði hér fyrr í dag, þá er það að gerast sem hæstv. utanrrh. marglýsti yfir að stjórnarandstaða með löngum ræðum um EES væri að gera, sem reyndar gerðist ekki því það mál gekk til atkvæðagreiðslu, en hann fullyrti og hélt því fram að þar væri minni hluti að níðast á meiri hluta. Ef mál fara fram sem nú horfir hér, þá liggur það fyrir að minni hluti þingsins er að níðast á meiri hlutanum og þar með er stórhætta á ferðum fyrir þingræði í landinu. Ég segi nei.