Framleiðsla og sala á búvörum

177. fundur
Sunnudaginn 09. maí 1993, kl. 00:21:07 (8501)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti hefur kannað þetta mál og úrskurður forseta er óbreyttur. Hvað varðar tilvísun til fyrri mgr. 62. gr. þingskapa, þá á það ákvæði við um mál áður en umræða fer fram, að við tiltekna umræðu fari engin umræða fram heldur aðeins atkvæðagreiðsla. Í þessu máli hefur umræða þegar farið fram en það er síðan ákvörðun forseta hvenær atkvæðagreiðsla fer fram.