Þingsetning

0. fundur
Mánudaginn 17. ágúst 1992, kl. 14:11:01 (2)

     Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
    Ég býð alla hv. alþingismenn velkomna til þingstarfa. Sömuleiðis býð ég starfsfólk þingsins velkomið til starfa og óska því allra heilla í störfum þess.
    Þessum fundi verður nú frestað til kl. 5 síðdegis en þá verður stuttur fundur til þess að útbýta þingskjölum. Síðan er ráðgert að framhald þessa þingsetningarfundar verði á miðvikudaginn kl. 13.30. --- [Fundarhlé.]