Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þegar ég er að túlka viðhorf Alþb. fyrir kosningar þá er ég fyrst og fremst að líta á hvað þeir gerðu en ekki hvað þeir sögðu.
Eins og kom fram hér í umræðunni í dag, þá töldu þeir ágreininginn sem uppi var innan stjórnarliðsins, og þeir hafa lýst hér fjálglega, ekki vera tilefni til þess að rjúfa stjórnina. Þeir fóru til kosninga með þennan samning sem sitt plagg.