Stjórnarskipunarlög

9. fundur
Fimmtudaginn 27. ágúst 1992, kl. 17:32:07 (132)


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það liggur fyrir í því sem fram hefur komið á þessum fundi að hv. 9. þm. Reykv. er hraðlæs maður. En ég held að hann hafi dregið ályktanirnar fullhratt af því sem hann las svona hratt og endurtek að það sem er helsta niðurstaða þessarar athugunar ef litið er á þennan þátt einan er hversu óráðið fólk er í afstöðu sinni til málsins. Og ég endurtek að því fer víðs fjarri að það hafi verið eða sé á nokkurn hátt ætlun utanrrn. að hafa einhverja launung um þessa könnun.