Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti hafði hugsað sér að fresta þessari umræðu að lokinni ræðu hv. 8. þm. Reykn. sem hér er á mælendaskrá næst, en ef hv. þm. óskar eindregið eftir því að umræðunni verði frestað nú áður en hann hefur sitt mál, þá mun forseti verða við því. En það var ekki meiningin að ljúka þessari umræðu í dag heldur einungis að fresta henni en að leyfa hv. þm. að tala sem er hér á mælendaskrá. ( ÓRG: Ég vil a.m.k. fá að geyma mína ræðu þar til Jón Baldvin Hannibalsson er kominn til umræðunnar.)