Gunnlaugur Stefánsson
:
Frú forseti. Lögreglumenn vinna erfið störf og oft við hættulegar aðstæður. Þetta er okkur öllum ljóst. Ég fagna yfirlýsingu hæstv. dómsmrh. um að löggæslumálin séu nú í endurskoðun og þá á ég við skipulag þeirra. Það má setja spurningarmerki við það skipulag að fíkniefnadeild lögreglunnar skuli öll vera undir lögreglustjóranum í Reykjavík. Spurningin er sú hvort með þeim hætti sé landsbyggðinni þjónað eins vel og kostur er. Þessar umræður hafa fyrst og fremst snúist um ástand þessara mála hér í Reykjavík og nágrenni en það þarf líka að víkja þessu máli og þessari athugun að þeim aðstæðum sem ríkja á landsbyggðinni. Ég vona að hæstv. dómsmrh. taki glöggt tillit til þess í þessari endurskoðun.
Á bls. 317 og 318 í fjárlagafrv. sem lagt var fram sl. haust fyrir yfirstandandi ár er fjallað m.a. um löggæslumál. Það vekur athygli við lestur skýringa um löggæslumálin að þar er hvergi minnst á fíkniefnadeildina eða á nauðsyn á hækkun framlaga til hennar. En það er þó getið nokkurra hækkana á framlögum til ýmissa deilda löggæslustarfsins. Ég ráðlegg þingmönnum að lesa fjárlagafrv. og skoða hvað þar stendur. Ekki gefst tími til að lesa það hér. Það kann að vera að þegar fjárlagafrv. verður lagt fram núna eftir nokkrar vikur megi sjá orðið ,,fíkniefnadeild`` eða ,,fíkniefnamál`` þar á skrá og kannski einhverja hækkun í kjölfar þeirra umræðna sem nú þegar hafa farið fram.