Beiðni um utandagskrárumræðu

12. fundur
Miðvikudaginn 02. september 1992, kl. 13:44:37 (232)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill leiðrétta þann misskilning, sem reyndar kom líka fram í gærkvöldi í umfjöllun um þingsköp hjá öðrum hv. þm., að það er ekki rétt að forsætisnefndin hafi ekki komið saman síðan hún var kosin. Fyrir utan þann fund sem var haldinn á fyrsta klukkutímanum eftir að hún var kosin þá kom hún saman til fundar 20. ágúst. Og það stóð til að forsætisnefndin kæmi saman til fundar í dag. En af eðlilegum ástæðum, vegna fjarveru þriggja forsætisnefndarmanna, varð því miður að fresta þeim formlega fundi um eina viku. Hins vegar verður samráðsfundur með forsætisnefndinni, þeim sem eftir sitja hér, væntanlega síðar í dag sem nú þegar hefur vonandi verið boðað til.
    Forsætisnefndin starfar skv. 10. gr. þingskapalaga og formlegur fundur verður haldinn næsta miðvikudag --- af þeim ástæðum sem ég hef nú þegar gert grein fyrir. Og ég vænti þess að forsætisnefndin eigi eftir að sanna að það sé farsæl lausn sem þar hafi verið fundin og hún eigi eftir að eiga gott samstarf eins og ég hef reyndar lýst yfir áður, strax eftir að hún var kosin.