Guðni Ágústsson
:
Hæstv. forseti. Enginn þeirra þingmanna sem hér hafa talað hefur minnst á það atriði sem gerir þessa umræðu enn þá brýnni en áður var, sem er það að undir miðnætti í gærkvöldi gerðist það að hæstv. félmrh. Jóhanna Sigurðardóttir tjáði sig í seinni fréttum og sagði frá því að samkvæmt lögum bæri þeim sem segðu upp fleiri en fjórum starfsmönnum að tilkynna það til félmrn. og í hundruðum og þúsundum streymdu inn uppsagnir fólks í landinu. Hæstv. félmrh. bætti því við að hér stefndi í það atvinnuástand í þjóðfélaginu sem gerðist í EB-löndunum. Og hæstv. félmrh. taldi í gærkvöldi að brýnt væri fyrir Alþingi og ríkisstjórn að ræða þessi mál og marka nýja stefnu. Ég vek athygli á þessu hér, hæstv. forseti, að þetta atriði í málflutningi hæstv. félmrh. gerir það að verkum að krafan um að umræða utan dagskrár um stefnu ríkisstjórnarinnar í atvinnu- og efnahagsmálum fari fram í þessari viku er mikilvægari en fyrr. Það eru ekki bara við sem óttumst það ástand sem er að myndast í þjóðfélaginu sem höfum áhyggjur heldur brennur þessi eldur heitastur á þúsundum Íslendinga sem þessa daga eru vegna stefnu ríkisstjórnarinnar að fá uppsagnarbréfin sín. Þess vegna skora ég á forseta Alþingis að verða við þeirri beiðini og lýsa því yfir hér að þessi umræða fari fram eigi síðar en á morgun, enda hefur hæstv. forsrh. lýst því yfir sjálfur að hann sé tilbúinn í þessa umræðu. Hún þolir enga bið.