Kjaradómur

12. fundur
Miðvikudaginn 02. september 1992, kl. 15:04:25 (249)

     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill taka fram að auðvitað er miðað við það að þingmenn og ráðherrar að sjálfsögðu jafnframt ræði það mál sem á dagskrá er. Ráðherrar hafa þar ekki neinn frekari rétt en aðrir til að fara út fyrir efnið. Það hefur hins vegar hingað til ekki verið gerð athugasemd við það þó að menn minnist á önnur frumvörp í ræðum sínum en eru til umræðu en að sjálfsögðu er miðað við þá meginreglu að menn ræði það mál sem á dagskrá er.