Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir hans svar. Það verður ekki skilið á annan veg en þann að heimilt sé þrátt fyrir það að eitt mál sé hér á dagskrá að taka fyrir þau hin tvö hin merkilegu frumvörp sem hér liggja frammi um sama efni.