Kjaradómur

12. fundur
Miðvikudaginn 02. september 1992, kl. 15:05:24 (251)


     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill taka fram að hér er verið að ræða fyrsta málið á dagskrá og er miðað við að það mál sé rætt við þessa umræðu en önnur mál verða tekin eftir röð á dagskrá. Það getur hins vegar verið eðli málsins samkvæmt í lagi að minnast á önnur frumvörp þótt ekki að það sé mælt fyrir þeim öllum í einu eða þau rædd í einu lagi. Það er ekki miðað við það heldur er aðeins á dagskrá nú Kjaradómur, stjfrv., 19. mál á þskj. 19.