Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Áður en umræðan hefst að nýju um 1. dagskrármálið vill forseti skýra frá því að það hefur orðið samkomulag um það að þessari umræðu verði nú haldið áfram til kl. 8 í kvöld. Á mánudag fer hér fram utandagskrárumræða um atvinnumálin, eins og fyrirhugað hefur verið, og á miðvikudag er fyrirhugað að ljúka umræðunni um EES-málið og stjórnarskrármálið. Þetta er það samkomulag sem gert var og nú mun umræðan um 1. dagskrármálið tekin upp að nýju.