Evrópskt efnahagssvæði

13. fundur
Fimmtudaginn 03. september 1992, kl. 19:43:40 (313)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Nú ætla ég að ræða um gæslu þingskapa og benda á það að hér hefur einn hv. þm. og einn hæstv. ráðherra hafið efnislega umfjöllun um málið undir þingskapaliðnum og komnir þar fram fyrir okkur aðra sem hér erum á mælendaskrá. Ég segi þetta sérstaklega vegna þess að hæstv. forsrh. átti ekki orð til að lýsa vanþóknun sinni á sl. vetri yfir því ef einhverjum varð það á að ræða um efnisleg atriði undir liðnum þingsköp. En það hefur greinilega breyst. Ég vil ítreka það við hæstv. forsrh. að hér eru menn á mælendaskrá um þetta mál en tveir hv. þm. hafa hafið um málið efnislega umræðu undir liðnum þingsköp.