Atvinnumál

14. fundur
Mánudaginn 07. september 1992, kl. 13:33:15 (319)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Nú hefst utandagskrárumræða um atvinnumál að beiðni hv. 6. þm. Norðurl. e., Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar.
    Forseti hefur fallist á að umræðan fari fram samkvæmt síðari mgr. 50. gr. þingskapa, enda liggur fyir samkomulag milli þingflokka um fyrirkomulag umræðunnar.
    Til að hægt verði að ljúka umræðunni er enn fremur samkomulag um að þingflokksfundir hefjist ekki fyrr en um eða upp úr kl. fimm í dag.