Kjaradómur

15. fundur
Þriðjudaginn 08. september 1992, kl. 14:22:52 (355)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hv. þm. bar fram fyrirspurn til hæstv. ráðherra sem varðar það mál sem er nú á dagskrá. Forseti væntir þess að hæstv. ráðherrar hafi tækifæri til að svara hv. þm. undir þeim dagskrárlið sem hér er til umræðu og biður hv. þm. að hafa biðlund og sjá hvort ekki berast svör við þeim fyrirspurnum sem hann bar fram við hæstv. ráðherra.