Fjarvera forsætisráðherra

15. fundur
Þriðjudaginn 08. september 1992, kl. 17:10:00 (403)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill vegna þessara orða hv. 2. þm. Vestf. benda hv. þingheimi á að það var ljóst fyrir fram að hæstv. forsrh. yrði fjarverandi vegna komu Haraldar konungs V. af Noregi. Ég held að með allri sanngirni verði að virða fjarveru hæstv. forsrh. Þar sem hæstv. fjmrh. hefur verið hér í allan dag telur forseti með öllu óeðlilegt að ekki sé unnt að halda þessari umræðu áfram þó að hæstv. forsrh. sé fjarverandi þar sem hans konunglega tign, Haraldur af Noregi sem er í heimsókn.