Forseti (Guðrún Helgadóttir)
:
Forseti vill upplýsa að á fundi með formönnum þingflokka tilkynnti forseti Alþingis þegar á mánudaginn frekar en á föstudaginn, ég man það ekki glöggt, að hæstv. forsrh. yrði upptekinn þessa daga sem konungur Noregs væri hér í heimsókn. Hafi þingflokksformönnum láðst að tilkynna það til þingflokka sinna er við þá að sakast um það. En það kom skýrt fram í máli hæstv. forseta þingsins. Forseti vill biðja hv. þm. að stytta mál sitt um þingsköp sem unnt er til að greiða fyrir því að þessi umræða geti nú hafist.