Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að segja annað en það sem ég sagði áðan að það hefur komið hér í ljós og það hefur fyrrv. ráðherra upplýst okkur um að hann vissi mjög mikið um þessi mál í sinni ráðherratíð. Ég hef ekki nefnt annað en að ég hefði gjarnan viljað að þeim upplýsingum hefði verið komið formlega á framfæri frá ráðuneytinu.
Hitt er svo annað mál, þegar hann sagðist telja að hann hafi á þeim tíma vitað mest núlifandi manna um þessi mál, að þá dettur mér í hug saga sem einn góður maður, dönskukennari, sagði. Hann sagðist álíta að hann væri annar besti dönskukennari á Íslandi. Hann var spurður hver væri sá besti. Ég veit nú ekki um neinn betri, sagði hann, en mér finnst vissara að slá þennan varnagla.
Ég held kannski að þingmaðurinn hefði átt að slá viðlíka varnagla. ( Gripið fram í: Gagnvart þeim dauðu gerði hann það.)