Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það var gott að þetta kom fram en einmitt á sviði frystra tilbúinna vara eru mestu möguleikar okkar og þar eru mörg fyrirtæki að vinna að framþróun og í því tilfelli breytir samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði engu. Þar tala ég af nokkurri reynslu.
Varðandi það sem hæstv. ráðherra ræddi um tvíhliða samning, er þá ráðherra tilbúinn til þess að lýsa því yfir til þess að liðka fyrir því máli að í framhaldi af samningnum um EES komi aðild Íslendinga að EB ekki til greina og á þeim grundvelli fari menn strax að vinna að því að breyta þessum samningi í tvíhliða samning og koma þar með því móti í veg fyrir þær hatrömmu deilur sem annars mundu hefjast innan lands strax eftir að samningurinn væri undirritaður um það hvert næsta skref yrði, innganga í EB eða þróun samningsins í átt til tvíhliða samnings?