Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég veit ekki á hvaða vettvangi hæstv. ráðherra hefur gefið þau svör við þeim fyrirspurnum sem ég bar fram. Ég hef ekki heyrt þau í þessari umræðu, þau hafa ekki komið fram í máli hans.
Ég vil líka minna ráðherrann á það að ég spurði að því hvaða úttekt eða skýrslur lægju fyrir um byggðaráhrif samningsins aðrar en þær sem væru frá Byggðastofnun. Í framsöguræðu ráðherra kom fram hver áhrifin að hans mati yrðu og þau svör voru gjörólík mati Byggðastofnunar, einu skýrslunnar sem ég veit til að liggi fyrir. Hæstv. ráðherra hefur ekki upplýst enn hverjir hafi gert þær skýrslur og athuganir sem að hans mati leiða til þess að áhrifin á byggðaþróun væri jákvæð eða á sjávarútveg á landsbyggðinni. Það er ekki upplýst. Það væri fróðlegt að fá það upplýst í þessari umræðu.