Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það er nú smám saman að koma í ljós að það þarf að draga svörin með töngum upp úr hæstv. utanrrh. Reyndar vék hann sér undan því að svara spurningunni með karfaflökin og ég endurtek hana: Hvað lækkar tollurinn mikið nú í upphafi og hver verður hann þegar aðlöguninni lýkur 1997?
Í öðru lagi varðandi ediksíldarflökin. Það skyldi nú ekki vera einmitt vegna mikilvægi þessarar afurðar sem bírókratarnir í EB hafa komið í veg fyrir að felldur sé niður af þeim tollur, að þeir viti hvar vaxtarmöguleikar okkar liggja í þessari grein?