Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti vill minna á nýjar reglur þingskapa um ræðutíma á fyrirspurnafundum. Þeim hefur verið breytt þannig að fyrirspyrjandi hefur þrjár mínútur í fyrri umferð og tvær í hinni síðari en ráðherra fimm mínútur í hinni fyrri og tvær í hinni síðari.