Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs og er fyrirspurninni svarað en að þessu gefna tilefni vill forseti höfða til skilnings hv. þm. og hæstv. ráðherra á þingsköpum og biðja þá um að túlka mjög þröngt þessa grein, að bera af sér sakir, hér eftir.