Uppboðsmarkaður fyrir sjávarafla

19. fundur
Föstudaginn 11. september 1992, kl. 10:37:03 (627)

     Ólafur Ragnar Grímsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að í efh.- og viðskn. eru ýmsir þingmenn sem hafa einnig látið mjög til sín taka á sviði sjávarútvegs og sitja í sjútvn. þingsins þannig að ef ekki er hægt að hefja hér atkvæðagreiðslu vegna funda í þeirri nefnd, þá fyndist mér óeðlilegt að taka þetta mál fyrir að þeim fjarstöddum.