Áhrif af stefnu ríkisstjórnarinnar á Háskóla Íslands

19. fundur
Föstudaginn 11. september 1992, kl. 13:59:21 (643)

     Tómas Ingi Olrich :
    Virðulegi forseti. Miðað við þann ásetning ríkisstjórnar og stjórnarflokkanna að vinna að sparnaði í rekstri ríkisins og minnka hallarekstur ríkissjóðs er ekki hægt að komast hjá því að Háskóli Íslands deili kjörum með þjóðinni og leiti sjálfur ráða til að hagræða í rekstri og spara. Háskóli Íslands getur ekki verið úr tengslum við það sem almennt er að gerast í þessu þjóðfélagi hvort sem um er að ræða efnahagsmálin, fiskveiðimál eða menntamál. Og það er rétt að taka það fram sérstaklega að sú fækkun nemenda, sem á sér stað innan Háskóla Íslands, er ekki í samræmi við það sem á sér stað í Háskólanum á Akureyri. Þar fjölgar nemendum. Samkvæmt upplýsingum, sem ég hef um þann skóla, fjölgar þeim um 17% nú í haust og þar fjölgar konum meira en körlum og innan Kennaraháskólans fjölgar nemendum líka. Þetta er til þess að undirstrika það að með stofnun Háskólans á Akureyri er verið að fjölga menntamöguleikum. Það er verið að leggja áherslu á tengsl við atvinnulífið og það hlýtur ásamt efnahagsástandinu að hafa áhrif á rekstur skólastofnunar eins og Háskóla Íslands. Það eru því margir samverkandi þættir sem verða til þess að nemendum fækkar í Háskóla Íslands.