Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 22:09:12 (779)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Vegna fyrirspurnar frá hv. þm. um komu hæstv. forsrh. getur forseti upplýst að hann hefur þegar gert ráðstafanir til að koma boðum til hæstv. forsrh. Forseti á von á því að hæstv. ráðherra komi. Það gætu þó liðið nokkrar mínútur þangað til það verður en ég vænti þess að hann komi áður en langt um líður.