Forseti (Sturla Böðvarsson)
:
Forseti gat þess áðan að tilkynnt hefði verið af forsetastóli að þessi mál yrðu tekin á dagskrá á þessum fundi. Ef sérstakar óskir koma hins vegar fram um það að þessum dagskrármálum verði frestað vill forseti leita samkomulags um það og gera örstutt hlé til að ræða nánar um þetta við formenn þingflokka sem kunna að vera í salnum. --- [Fundarhlé.]
Það hefur orðið að samkomulagi að fresta því að taka til umræðu 8. og 9. dagskrármál og eru þau því tekin út af dagskrá. Fleira liggur ekki fyrir þessum fundi. Fundinum er slitið.