Guðrún Helgadóttir
:
Hæstv. forseti. Það gleður mig að hæstv. samgrh. hefur orðið fyrir því sama og ég. Ég vil minna á að hæstv. forseti sagði ekki: Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs, heldur sagði hann beint að umræðu væri lokið og er það er afar fyrirgefanleg villa. Ég var einnig höndum seinni að biðja um orðið svo ég vil fara þess á leit við hæstv. forseta að hann líti svo á að hér hafi orðið smá mistök og opni umræðu aftur. Það er afar óþægilegt að verða fyrir því að tilkynnt sé að umræðu sé lokið án þess að það komi í ljós að fleiri hafi ekki kvatt sér hljóðs. Maður er háður þessum hefðum og þess vegna náði ég hreinlega ekki, frekar en hæstv. ráðherra, að kveðja mér hljóðs en hef á því fullan hug.