Umræða um lagaákvæði er varða samgöngumál

22. fundur
Miðvikudaginn 16. september 1992, kl. 15:54:54 (841)


     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Forsætisnefnd hefur aðeins haldið örfáa fundi. Það er auðvitað ekki verkefni annars en forseta Alþingis sem situr hverju sinni að líta yfir það sem lagt er fram á Alþingi og bera ábyrgð á því. Frv. hafa ekki efnislega verið lögð fyrir forsætisnefnd eins og hæstv. forseti veit. Sá hv. þm. sem hér talar ber ekki neina ábyrgð á framlagningu þessa frv. Ég harma það að svo ströng fundarstjórn skuli hér upp tekin. En ég þykist hafa komið á framfæri mjög svo harðri gagnrýni minni á þetta endemis plagg sem hér liggur fyrir og mun ekki ræða það frekar í þingskapaumræðu.