Umræða um lagaákvæði er varða samgöngumál

22. fundur
Miðvikudaginn 16. september 1992, kl. 15:58:19 (845)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegur forseti. Ég hef ekki hugsað mér að ræða efnislega um þetta mál sem hér hefur verið rætt sl. tvo tíma. Ég beindi ákveðnum spurningum til hæstv. samgrh. en gat ekki verið viðstödd allan tímann. Ég bið að sjálfsögðu afsökunar á því að ég þurfti að bregða mér hér frá vegna viðtals við fjölmiðla. En mér skilst að hann hafi ekki svarað þeim spurningum sem hér voru lagðar fram. Ég vil því spyrja að því hvernig á því stendur að umræðunni er hætt áður en ráðherra svarar þeim spurningum sem fyrir hann voru lagðar.