Umræða um lagaákvæði er varða samgöngumál

22. fundur
Miðvikudaginn 16. september 1992, kl. 16:05:09 (851)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti skal með þökkum meðtaka leiðbeiningar hv. 4. þm. Norðurl. e. Þá hafa fleiri ekki kvatt sér hljóðs um gæslu þingskapa. ( SJS: Forseti bætir nú ekki fyrir sér með svona löguðu.) Hv. 5. þm. Vestf. hefur talað þrisvar um gæslu þingskapa og auðvitað eru takmörk fyrir því hvað slík umræða getur haldið áfram. Ef hv. þm. óskar að gera örstutta athugasemd þá tekur hann nú til máls um gæslu þingskapa.