Guðmundur Hallvarðsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það er með sérstökum hætti og ánægjulegt fyrir þingmenn sem eru nýbyrjaðir hér að fylgjast með þessum umræðum, einkum þegar menn eru að deila á það hvað hver og einn hafi sagt hér áður og fyrr. Sérstaklega er það athyglisvert að hlusta á hv. 8. þm. Reykn. tala, eins og hann hefur gert, með það í huga að ég er hér með bréf frá fjmrn., dags. 9. apríl 1991, sem sent er Sjómannafélagi Reykjavíkur vegna tollreglugerðar og tollfrjálsrar meðferðar farangurs farmanna og ferðamanna. Þar segir hann: ,,Að lokum þykir ráðuneytinu rétt að benda á að í kjölfar fyrirhugaðs samnings um Evrópskt efnahagssvæði, svo og aðlögun að þeim skattkerfisbreytingum sem verða í Evrópubandalaginu á næstu árum, megi gera ráð fyrir verulegum breytingum á heimildum manna, bæði ferðamanna og farmanna, til að flytja tollfrjálsa vöru til landsins. --- Ólafur Ragnar Grímsson.``