Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 14:20:16 (911)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill lýsa yfir fullu samþykki við þessar ábendingar hv. 2. þm. Vestf. Forseti hefur það sér til afsökunar að einn hv. þingflokksformaður, hv. 4. þm. Norðurl. v., kom hér að máli við forseta og dreifði athygli hans þar með. En auðvitað er þetta hárrétt. Nú óskar hv. 8. þm. Reykn. eftir að bera af sér sakir og hyggst forseti verða við því.