Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 15:39:57 (934)

     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill vekja athygli þingmanna á því að þeir geta einungis veitt andsvar við ræðu þingmanna en ekki við andsvari eins og mér heyrðist þingmaðurinn vera að gera í þessu tilviki. Ég vil vekja sérstaka athygli á þessu. Það kemur fram í 56. gr. þingskapa að andsvari má einungis beina að máli ræðumanns en ekki öðru andsvari.