Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 15:44:49 (936)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Þannig er hagað dagskrárgerð að þar koma aðeins fyrir þau mál sem ætlunin er að taka fyrir hverju sinni og almennum þingmönnum ekki kunnugt um hvort miklu fleiri mál séu kannski í farvatninu, óskráð á þá dagskrá sem við fáum í hendur. Mér brá satt að segja þegar allt í einu var svo komið að umræðan snerist um eðli Alþb. að ég hélt að ég hefði eitthvað gleymt mér í stólnum og ekki fylgst með, að skipt hefði verið algerlega um umræðuefni. Ég áttaði mig ekki á því undir hvaða lið ég gæti talað um það mál fyrst það var komið til umræðu hér í salnum en hafði verulegan áhuga á því að ræða það, sérstaklega í ljósi þess hvernig fór fyrir hæstv. utanrrh. og hans flokki eftir flokksþingið og hvort þarna væri um það að ræða að eins hefði farið fyrir Alþb. af þessum ástæðum. En ég bið forseta að sjálfsögðu velvirðingar á því hafi mér orðið á mistök í mínum málflutningi og ég talað undir röngum formerkjum.